Meistaradeild ÓB er fyrir knattspyrnustjörnur 5. flokks karla. Allir bestu fótboltamennirnir vilja spila í Meistaradeildinni. Hvað um þig?
Knattspyrnudeild Selfoss heldur knattspyrnumótið Meistaradeild ÓB í 5. flokki í þrettánda sinn árið 2017. Mótið verður haldið helgina 11.-13. ágúst á Selfossi og ber nafnið ÓB-Mótið.
Lið sem mæta með fjögur lið eða fleiri fá frítt hótelherbergi fyrir þjálfara sinn á meðan mótið stendur.
Fyrirkomulag mótsins verður með þeim hætti að á föstudag verður spilað hraðmót (þrír leikir á lið) til þess að getuskipta liðunum. Laugardag og sunnudag verður spiluð riðlakeppni (fimm leikir á lið).
Skráning:
Þátttökutilkynningu skal senda á netfangið knattspyrna@umfs.is
Mikilvægt er að eftirfarandi upplýsingar komi fram:
– Nafn félags og fjöldi liða
– Fjöldi þátttakendda í hverju liði
– Tengiliður félags vegna mótsins (farsími og netfang)
Staðfestingargjald:
Hvert lið þarf að greiða kr. 10.000 í staðfestingargjald(fyrir hvert lið, þar að segja a-lið, b-lið o.s.frv.) inn á reikning 0586-26-994, kt 690390-2569. Til að tryggja sér þátttöku er best að skrá liðið sitt og borga staðfestingagjaldið sem fyrst, gjaldið mun að sjálfsögðu ganga upp í þátttökugjaldið.
Þátttökugjald:
Þátttökugjald er kr. 13.000 fyrir hvern þátttakanda.
Frítt er fyrir einn þjálfara/liðstjóra frá hverju liði, það er að segja einn hjá a-liði, einn hjá b-liði o.s.frv.
Innifalið í þátttökugjaldi er:
– Morgunverður laugardag og sunnudag
– Hádegismatur laugardag
– Kvöldverður föstudag og laugardag
– Kvöldhressing föstudag og laugardag
– Gisting í skólastofu
– Bíóferð
– Sundlaugarpartý með skemmtiatriði
– Kvöldvaka
– Átta stórskemmtilegir fótboltaleikir
Mótið er núna haldið í ellefta sinn og er alltaf að verða flottara.
Keppendur, þjálfarar og foreldrar hafa verið mjög ánægðir með mótið.
Nánari upplýsingar veitir Sævar í síma 781-9500 og Sveinbjörn í síma 897-7697.